29.11.2009 | 16:48
Hamstrar hamstraðir?
Það er með ólíkindum hvað má telja fólki trú um að sé gott eða sniðugt leikfang. Ansi er ég hrædd um að hamstrarnir sem Kanarnir voru að hamstra í þessari frétt verði ekki eins vinsælir meðal barnanna og þeirra sem kaupa þá handa þeim. Lenda sjálfsagt neðst í dótakassanum áður en mánuður er liðinn og fara svo í "góða hirðinn" þeirra í ammríkunni.
Þessir hamstrar minna mig á upptrekktu músina sem við fjölskyldan gáfum kettinum í jólagjöf um árið. Við héldum að hann yrði svo glaður að fá nú loksins eitthvað að elta sem hefði eitthvað frumkvæði. Þegar búið var að opna pakkann hans og músin spýttist af stað, rauk kisi upp með kryppu á bakinu og íkornaskott og hljóp út í horn þar sem hann fylgdist hvæsandi með músinni meðan henni þvarr kraftur og trekkið kláraðist en við veltumst um af hlátri, steinhissa á þessum heigulshætti kattarins. Reyndum oft eftir þetta að láta hann vingast við músina en það var ekki við það komandi. Fyrir honum var þetta skaðræðisgripur og hann tók alla tíð stóran sveig fram hjá músinni jafnvel þótt við slepptum því að trekkja hana upp 
|
Hamstrar vinsælasta jólagjöfin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


amman
bjarnihardar
disadora
formosus
fullvalda
gattin
gbljosa
gylfablogg
hallibjarna
heidistrand
heimssyn
hildurhelgas
himmalingur
huxa
jenfo
jodua
jonaa
jyderupdrottningin
kaffi
kari-hardarson
kokkurinn
kolbrunb
kuriguri
landsveit
maeglika
mariataria
motta
prakkarinn
rannveigh
roslin
siggisig
sigrunzanz
sigurjonth
sivvaeysteinsa
svavaralfred
valgardur
vidhorf
Athugasemdir
Jónína Dúadóttir, 29.11.2009 kl. 17:22
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2009 kl. 00:09
Kettir láta ekki plata sig
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 1.12.2009 kl. 08:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.