Loksins eitthvað fréttnæmt.

Nú fá fjölmiðlar loksins eitthvað annað að jórtra á en Icesave og svikamillu auðmanna. Og greinilegt að nú á að blóðmjólka þessa mjólkurkú og kreista út úr þessum náttúruhamförum allan þann hasar sem hægt er. Fréttir, myndir og viðtöl við lærða og leika um gosið - endurteknar á klukkutíma fresti í mismunandi blæbrigðum ef einhver skyldi nú hafa misst af einhverjum fréttatímanna. Og fésbókarsíðurnar poppa upp eins og gorkúlur - flestar í léttari kantinum. Eins og t.d. "Eyjafjallajökull" sem flytur fréttir af gosinu og "Fimmvörðuháls - Heitasta gönguleiðin í dag" þar sem þeim sem komast á leiðarenda lofað gosi að launum Tounge 

Ég er í vinnunni minni og hélt ég yrði í stúkusæti en bæði skyggir mjólkurstöðin á útsýnið og svo er veðrið þungbúið þannig að það sést ekkert austur fyrir Þjórsá. En maður er vitaskuld aldrei ósnortinn þegar Íslensk náttúra er annars vegar og þótt ekki sé hægt að segja að eldgos séu beinlínis skemmtileg þá hleypa þau a.m.k. talsverðri spennu í hversdagslífið.

Fagurfræðilega er þetta afskaplega fallegt.


mbl.is Eldgosið er lítið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er karlmaður.

Þ.e.a.s. myndin sem fylgir fréttinni er af karlmanni þótt fyrirsögnin gefi annað til kynna. Af hverju fylgir ekki fyrirsögninni mynd af þessari duglegu stelpu sem setti Íslandsmet í flokki stúlkna í 800m skriðsundi? Ef ekki var til mynd af henni var þá ekki nær að hafa enga mynd? Jú jú Jakob Jóhann er gríðarlega öflugur sundmaður en fréttin var einfaldlega ekki um hann.

Skammist svo til að birta myndir af réttu fólki og gera stúlkunum jafnhátt undir höfði og körlunum.


mbl.is Eygló Ósk setti stúlknamet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo bregðast krosstré sem önnur.

Hvað með það þótt einhverjir geti ekki skrifað eða borið fram nafn bankans. Þetta er færeyskur banki og það veldur mér vonbrigðum ef Færeyingar ætla að taka upp útrásarvíkingasiði og nefna fyrirtæki sín ljótum útlenskum nöfnum. Haldið í þjóðarstoltið frændur og látið ekki glepjast af bankamálabulli annarra.
mbl.is Føroya Banki verður BankNordik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrr má nú aldeilis prófa!!!!

Dáist nú í aðra röndina  að svona fólki. Hef sjálf prófað gönguskíði (á þau m.a.s. einhversstaðar úti í bílskúr Tounge ) og það er mjög hressandi og skemmtilegt að skíða á þeim í góðu veðri. En þessi skíðaferð þykir mér nú einum of - sérstaklega ef þetta var í fyrsta sinn sem hann prófar gönguskíði. Gott að hann komst þetta og ekki þurfti að senda eftir honum björgunarleiðangur Whistling Tounge
mbl.is „Mig langaði bara til að prófa gönguskíði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers eiga blessuð börnin mín að gjalda?

Í kvöldmatinn gerði ég pasta með skinku, grænmeti og ostasósu. Það þótti ekki góður matur og fékk ég skömm í hattinn frá prinsessunum á heimilinu fyrir að vera arfaslakur kokkur. Eitthvað hlýtur nú að vera til í því þar sem þetta er önnur kynslóð barna minna sem heldur þessu fram. Eða eins og hún dóttir mín sagði í denn: "HVERNIG GETURÐU BÚIÐ TIL SVONA VONDAN MAT?" Tounge LoL

Hin illu öfl.

"Hann (aðalsæringamaður Páfagarðs) segir einnig, að árás sem kona gerði á Benedikt páfa á aðfangadagskvöld og kynferðishneyksli, sem skekið hafa kaþólsku kirkjuna í Bandaríkjunum, Írlandi, Þýskalandi og víðar, séu sannanir þess að hin illu ölf eigi í stríði gegn Páfagarði."

Ég er nú frekar þeirrar skoðunar að illu öflin eigi upptök sín í Páfagarði. Góð ræðan hans Stephen Fry á bloggi Láru Hönnu á eyjunni. Hvet alla til að hlusta á hana til enda.


mbl.is Segir djöfulinn hafa hreiðrað um sig í Páfagarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi var ég búin...

..að vera á leiðinni að gera eitthvað fyrir lúna skrokkinn minn sem hefur hýst sálina mína í 50 ár Heart Ég ákvað því að gefa honum betra líf í fimmtugsafmælisgjöf. Þær 6 vikur sem síðan hafa liðið eru 5 kíló búin að hverfa af honum - það samsvarar 10 smjörlíkisstykkjum W00t Ég er ekkert að flýta mér, enda skyndilausnir margbúnar að afsanna sig GetLost. Nei nei málið er mun einfaldara: ég borða bara ekki allt sem mig langar í, borða ekki hvenær sem mig langar til og borða ekki eins mikið og mig langar til Wink Já og sleppi öllum viðbættum sykri. Svo reyni ég að labba soldið meira, fara fyrr að sofa á kvöldin (ja nema þegar ég er á næturvakt) og hlæja meira Smile. Svei mér ef þetta er ekki bara að svínvirka. Hrossaasthmalyf hvað Tounge


Hvaða orsök liggur hér að baki??

Í mannheimum myndi vakna grunur um að móðir sem æli svona stórt barn (samsvarandi væri 7 kg barn) væri haldin sykursýki.

custom_1253780509364_giantbaby  3 kg barn og 6,8 kg barn.


mbl.is Risakálfur undir Eyjafjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað afmæli ♥

Það er stutt milli afmæla í fjölskyldunni þessa dagana. Það byrjar með mínu afmæli 28. janúar, síðan á mamma afmæli 22. febrúar, náfrændi minn á afmæli 26. febrúar og frænka mín ein heldur sinn dag 27. febrúar. Svo koma drengirnir mínir - sonurinn 7. mars og dóttursonurinn í dag 8. mars Wizard  25068_1320324242332_1057587162_30970082_6087272_n

 

Dóttursonur minn er þriggja ára í dag og í gær var haldið upp á afmælið hans með þeim flottustu kökum sem ég hef á ævi minni séð. Hún mamma hans er alger snillingur í kökugerð og kökuskreytingum. Hún er sko dóttir mín Wink Til að gæta alls réttlætis skal þó tekið fram að þessa kökulistamennsku hefur hún ekki frá mérLoL 

 

Þetta er sú sama dóttir og gerði mig að ömmu í annað sinn í desember - dugnaður og elja hjá þessari elsku alltaf hreint. Og mér til mikillar ánægju og gleði tóku þau sig upp og fluttu hingað á Selfoss fyrir hálfum mánuði þannig að ég fæ að njóta barnabarnanna miklu meira en áður Smile Já ég er heppin kona Happy

Heart Hjartanlega til hamingju með afmælið Mikael minn Heart

Afmæli hann á í dag

út af því við syngjum brag.

Sama daginn sem er nú,

sannarlega fæddist þú

Til hamingju með heilladaginn þinn

heillakarlinn minn

----------------------------------------------------------------------

Hann sonur minn er 24 ára í dag. Fallegur ungur maður í kennaranámi með brennandi áhuga á lífinu og tilverunni og óþreytandi réttlætiskennd. Alltaf þegar ég horfi á hann fyllist ég þakklæti til almættisins og stolti yfir að hafa alið þennan dreng af mér.

Til hamingju með daginn ljúfastur - vona að allir þínir dagar verði góðir og betri Heart


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband